-
Tilboð!
AMT panna 32 x 5 cm
Original price was: 21.900 kr..19.710 kr.Current price is: 19.710 kr.. -
Tilboð!
AMT panna 28 x 5 cm
Original price was: 18.900 kr..17.010 kr.Current price is: 17.010 kr.. -
Bakki fyrir hleypt egg (6 egg)
3.990 kr. -
Karfa fyrir hleypt egg (4 egg)
3.290 kr.
Léttu þér lífið
6 skref í átt að
sjálfbærara eldhúsi
með Thermomix
Spurt og svarað
Hvar og hvenær kom Thermomix fyrst á markað?
Thermomix kom fyrst á markað árið 1971 í Frakklandi. Upphaflega kom Thermomix á markað sem barnamauksvél, þ.e. hægt var að saxa, hita og mauka barnamatinn í einni og sömu vélinni. Síðan þá hefur Thermomix verið í stöðugri þróun og Thermomix TM6 er nýjasta týpan og kom á markað árið 2019. Thermomix hefur því verið á markaði í yfir 50 ár og um allan heim eru milljónir ánægðra notenda sem elska vélina og gætu ekki án hennar verið.
Hvað tekur Thermomix mikið pláss?
Thermomix kemur í staðinn fyrir 20 hefðbundin eldhústæki og áhöld. Umfangið á Thermomix (án gufusuðueingarinnar) er: hæð 34.1 cm, breidd 32.6 cm, dýpt 32.6 cm og hún vegur 7.95 kg. Aðrar tæknilegar upplýsingar má sjá hér.
Tæknilegar upplýsingarMega allir aukahlutirnir fara í uppþvottavél?
Já allir aukahlutirnir, blöndunarskálin og hnífurinn mega fara í uppþvottavél. Grunneininguna er best að þrífa með hreinni, rakri tusku. Thermomix er einnig með innbyggt hreinsiprógram sem gott er að venja sig á að nota.
Fylgir aðgangur að Cookidoo?
Með kaupum á vélinni fylgir með frír aðgangur að Cookidoo í 6 mánuði. Eftir það er árgjald; 48€. Vorwerk, framleiðandi Thermomix, á og rekur Cookidoo uppskriftabankann. Það er stöðugt verið að bæta við uppskriftum og við stefnum einnig á að þýða 10-20 uppskriftir á íslensku í hverjum mánuði. Mikilvægt er að skrá sig inn á heimasíðuna cookidoo.international sem er Evrópu platform sem Ísland tilheyrir.
Get ég sett mínar eigin uppskriftir inn á vélina?
Já þú getur sett inn þínar eigin uppskriftir á Cookidoo aðganginn þinn og þær birtast síðan á vélinni þinni. Ekki er hægt að deila þessum uppskriftum með öðrum heldur eru þær eingöngu á þínum Cookidoo aðgangi og þinni Thermomix vél.
Fyrir hvern hentar Thermomix best?
Stutta svarið: Thermomix hentar öllum.
Thermomix hentar þeim sem búa sjálfstætt, litlum fjölskyldum eða stórum. Hentar sérlega þeim sem hugsa vel vilja borða hreina fæðu, nærast vel, hugsa vel um heilsuna og umhverfið. Thermomix er fyrir þá sem kunna ekkert að elda og finnst það leiðinlegt en ekki síður frábært fyrir þá sem elska að elda og baka og er Thermomix leynivopnið á mörgum af fínustu veitingastöðum landsins. Ennfremur hentar Thermomix sérlega vel fyrir þá sem eru með fæðuofnæmi, óþol, einstaklingum með kyngingarvanda og þeim sem eiga erfitt með að t.d. skera og matbúa.
Hvað er hægt að gera í Thermomix?
Allt nema poppa og grilla! Thermomix er einstök matvinnslu- og eldavél sem vinnur á við 20 hefðbundin heimilistæki. Thermomix er blandari, matvinnsluvèl, töfrasproti, hrærivél, hakkavél, þeytari, hnoðari, barnamauksvél, ketill, vigt, hægeldunarpottur, sous vide, eggjasuðutæki, hrísgrjónapottur, gufusuðupottur, gerjun, eldun/steiking, upphitun, sjálfhreinsikerfi og uppskriftabanki. Thermomix er einfalt og aðgengilegt í notkun og sparar fjármuni, tíma og fyrirhöfn. Síðan en ekki síst er mjög skemmtilegt að elda í Thermomix og allir heillast.
Hver er helsti kosturinn við Thermomix?
Thermomix auðveldar alla matvinnslu og eldamennsku. Það er hagkvæmara og næringarríkara að elda heima frá grunni úr hráefnum sem maður velur sjálfur. Ekki þarf að standa yfir pottunum og hræra og allt umstang og uppvast verður minna. . Thermomix sparar mikinn tíma þar sem ekki þarf lengur að standa yfir pottum og hræra og þannig gefst meiri tími til að sinna sjálfum sér og/eða fjölskyldunni. Hráefnin eru alltaf elduð við kjörhita með nákvæmri hitastýringu og því tapast ekki mikilvæg næringarefni og vitamin úr fæðunni. Thermomix býður upp á svo marga notkunarmöguleika og sparar mikla fjármuni sem annars færu í kaup á mörgum smátækjum af misjöfnum gæðum með mislanga endingu. Einnig sparast mikið í otkunotkun miðað við notkun á helluborði og þannig sparast nokkrir þúsundkallar á hverju ári. Einnig er ótrúlega gaman að nýta sér snjalltæknina í eldhússtörfin og gera daglegt líf léttara. Aðgangur að þúsundum uppskrifta mögulegur með nettengingu og reglulegar uppfærslur.
Þarf að kaupa eitthvað aukalega?
Thermomix kemur með öllum aukahlutum. Það þarf ekki að kaupa neitt aukalega til að nýta alla notkunarmöguleikana. Hins vegar bjóðum við upp á eldhúsvörur frá gæðamerkjum sem henta vel þegar eldað er og bakað frá grunni.



