Skip to main content

Thermomix á Íslandi

1. Eitt tæki, margir notkunarmöguleikar

Thermomix hefur notkunarmöguleika 20 hefðbundinna heimilistækja og því alger óþarfi að kaupa mörg smátæki í eldhúsið. Thermomix er m.a. vigt, blandari, töfrasproti, hrærivél, þeytari, hakkavél, hnoðari, barnamauksvél, ketill, eggjasuðutæki, hrísgrjónapottur, gufusuðupottur og hægeldunarpottur. Bilanatíðni er mjög lág og 50 ára reynsla komin á þessa mögnuðu græju. Allir aukahlutir og varahlutir eru fáanlegir hjá Eldhústöfrum ehf.

2. Spörum orkunotkun

Þú sparar orkunotkun með því að elda með Thermomix, sérstaklega í réttum þar sem eldað er á mörgun hæðum þar sem hægt er að elda t.d. súpu, kartöflur og annað grænmeti og fisk í einu og sama tækinu allt á sama tíma. Thermomi er mjög öflug í allri vinnslu en tekur ekki til sín mikið rafmagn. Þetta skiptir allt máli til lengri tíma.

3. Spörum tíma

Matvinnsla og eldamennska með Thermomix sparar mikinn tíma bæði við undirbúning hráefnis og svo er ekki lengur þörf á að standa bundin(n) yfir pottunum. Innbyggðar uppskriftir, skref fyrir skref leiðbeiningar og vikumatseðill getur einnig sparað dýrmætan tíma. Við hjá Thermomix trúum því að það bæti almennar neysluvenjur að eiga gæðatíma við matseld og á matmálstíma.

4. Gerum hagkvæmari innkaup

Forðumst að kaupa of mikið og henda mat, skilvirk yfirsýn dregur úr kostnaði við innkaup. Best er því að hugsa fram í tímann og versla í samræmi við vikumatseðil og uppskriftir. Það er svo auðvitað alger snilld að gera t.d. súpur og pottrétti úr slöppu grænmeti eða vörum á síðasta séns. Við ættum öll að venja okkur á að borða afganga, af virðingu við móður jörð (svo er það líka betra fyrir budduna).

5. Neytum fjölbreyttrar fæðu

Einhæft mataræði getur gert umhverfi framleiðenda viðkvæmt fyrir ágengi, þurrkum og loftlagsbreytingum. Hægt er að fá innblástur fyrir fjölbreyttum hráefnum í uppskriftabankanum Cookidoo, við gætum t.d. valið meira plöntubased fæði og reynum að kaupa sem mest úr nærumhverfi.

6. Flokkum!

Að flokka plast, pappa og lífrænt þarf alls ekki að vera flókið eða tímafrekt. Best er að koma sér upp aðstöðu fyrir flokkunina og gera þetta að vana. Þannig getum við t.d. betur fylgst með því hvort við erum að henda nýtanlegum mat. Þessi litlu grænu skref eru öll mikilvæg. Með því að kaupa grunnhráefni og elda allt frá grunni getum við t.d. dregið til muna úr innkaupum á tilbúnum vörum í plastumbúðum.